Lífið

Brim besta íslenska myndin

Brim er besta innlenda mynd ársins 2010 samkvæmt álitsgjöfum Fréttablaðsins, með töluverðum yfirburðum. Myndin var frumsýnd 2. október og alls sáu hana hátt í ellefu þúsund manns í bíó.

Hún fékk fjórar stjörnur í einkunnagjöf Fréttablaðsins, auk þess sem breska tímaritið Tribune og hið bandaríska Film Quarterly hafa hrósað henni. Hið síðarnefnda sagði: „Brim er heillandi drama sem gerist um borð í fiskibáti. Erfiðleika áhafnarmeðlimanna tengir maður óumflýjanlega við efnahagsástandið í landinu. Þetta er vel leikin mynd og þrátt fyrir að hún sé byggð á leikriti tryggir örugg leikstjórn Árna að verkið gengur upp á hvíta tjaldinu."

Brim gerist úti á sjó og fjallar um sjö manneskjur um borð í báti sem rekur vélarvana meðan stormur nálgast. Myndin byggir á samnefndu verðlaunaleikriti Jóns Atla Jónassonar, sem leikhópurinn Vesturport setti upp. Fyrir nokkrum árum ákvað Vesturportshópurinn að gera mynd eftir verkinu og var Árni Ólafur Ásgeirsson, sem áður hafði gert myndina Blóðbönd, fenginn til að leikstýra. Á meðal leikara eru Ólafur Egilsson, Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson.

Í öðru sæti yfir bestu myndirnar lenti unglingamyndin Órói í leikstjórn Baldvins Z, sem fékk einnig fjórar stjörnur hér í Fréttablaðinu. Myndin var frumsýnd skömmu á eftir Brimi, 15. október, og aðeins fleiri sáu hana í bíó, tæplega þrettán þúsund manns.

Aðrar myndir sem fengu atkvæði í valinu voru Sumarlandið, Mamma Gógó, sem var frumsýnd 1. janúar, og The Good Heart eftir Dag Kára Pétursson.

Álitsgjafar: Dögg Mósesdóttir, Erpur Eyvindarson, Freyr Gígja Gunnarsson, Guðni Sigurðsson, Hilmar Oddsson, Hrönn Marinósdóttir, Ívar Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Marteinn Þórsson, Roald Eyvindsson, Sindri Sindrason, Tómas Valgeirsson og Þórarinn Þórarinsson.

freyr@frettabladid.is

Unglingamyndin Órói lenti í öðru sæti yfir bestu myndirnar.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.