Innlent

Atli styður tillöguna einungis vegna Evrópusambandsmálsins

Atli Gíslason
Atli Gíslason
Atli Gíslason, sem sagði sig úr þingflokki VG nýlega, sagði á Alþingi í dag að hann styddi vantrausttillögu Sjálfstæðisflokksins en það myndi hann gera einungis vegna umsóknar ríkisstjórnarinnar um aðild að Evrópusambandinu.

Hann sagði einnig að ríkisstjórnin þurfi endurnýjað umboð þjóðarinnar í Evrópusambandsmálinu. „Hér stend ég, og get ekki annað en sagt já vegna ESB-málsins," sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×