Innlent

Tæplega 14.000 atvinnulausir

Atvinnuleysi í mars mældist 8,6 prósent en að meðaltali voru 13.757 manns atvinnulausir í mánuðinum.

Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í apríl minnki frá marsmánuði og verði á bilinu 8,1- 8,5 prósent. Þetta kemur fram í yfirliti Vinnumálastofnunnar um ástandið í atvinnumálum. Þar kemur fram að í apríl í fyrra var atvinnuleysi 9 prósent, en 9,3 prósent í mars það ár. Því hefur dregið nokkuð úr atvinnuleysinu miðað við árið í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×