Innlent

Síðustu þorpin gætu þurft að bíða lengi eftir malbikinu

Kristján Már Unnarsson skrifar
Patreksfjörður, Tálknafjörður og Bíldudalur stefna í að verða síðustu þéttbýliskjarnar á Íslandi, ásamt Borgarfirði eystra, til að tengjast öðrum landshlutum með bundnu slitlagi. Ráðherra vegamála gat engu svarað á Alþingi um hvernig vegamál staðanna á sunnanverðum Vestfjörðum verða löguð.

Byggðarlög allt í kringum landið hafa hvert af öðru á undanförnum árum fagnað þeim tímamótum að tengjast vegakerfinu með nútímavegi. Þannig gleðjast Vopnfirðingar síðar í sumar þegar þeir losna við síðustu sautján malarkílómetrana, en um leið tengist Bakkafjörður hringveginum með slitlagi. Á Vestfjörðum fá Drangnesingar brátt ástæðu til að fagna en vinna við síðustu fimm kilómetrana þangað er að hefjast í botni Steingrímsfjarðar.

Með þessum áföngum sitja aðeins fjórir þéttbýlisstaðir eftir án malbiksstengingar; Borgarfjörður eystri, með 35 kílómetra gat, og svo vestfirsku þorpin þrjú, Bíldudalur, Tálknafjörður og Patreksfjörður, sem búa við 69 kílómetra langa malarkafla.

Suðaustanlands vantar enn sjö kílómetra upp á að Breiðdælingar og aðrir Austfirðingar komist suðurleiðina til Reykjavíkur á slitlagi. Íbúar Þingeyrar eru kannski verst staddir, geta þó komist bakaleiðina um Ísafjörð á malbiki, en þurfa annars að þola 137 kílómetra langa malarkafla á þeim vegi sem eðlilegast væri að aka til Reykjavíkur.

Stöðunni á sunnanverðum Vestfjörðum lýsti sjálfstæðismaðurinn Einar K. Guðfinnsson á Alþingi í gær sem mestu sorgarsögu í uppbyggingu vegamála á Íslandi á undanförnum árum.

"Hér er gríðarlega mikið í húfi, hvorki meira né minna en framtíð byggðanna á sunnanverðum Vestfjörðum," sagði Einar. Og spurði ráðherra vegamála um hvernig hann ætlaði að leysa pattstöðuna sem ríkir um veginn um Ódrjúgsháls vegna deilna um nýtt vegstæði um Teigsskóg og yfir tvo firði.

Ögmundur Jónasson vegamálaráðherra kvaðst vilja leysa málið í sátt: "Ég hef í hyggju að halda vestur þegar þingi lýkur og vinna að því að koma þessu máli á réttan rekspöl," sagði ráðherrann.

"Mér heyrist á þessu að nákvæmlega ekkert sé að gerast í sambandi við vegagerð á þessu svæði," voru viðbrögð þingmannsins við svari ráðherrans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×