Innlent

Starfsmenn Norðuráls boðaðir á áríðandi fund

Verkalýðsfélag Akraness hefur boðað starfsmenn Norðuráls á Grundartanga til áríðandi fundar í kvöld, eins og það er orðað.

Tilefnið er að þeir hafa verið með lausa samninga í sex mánuði og samninagviðræður hafa ekki borið árangur. Norðurál hefur boðið samninga á borð við þá sem gerðir hafa verið á almenna vinnumarkaðnum, en verkalýðsfélagið vill samning, sambærilegan við þann sem Járnblendiverksmiðjan gerði nýverið við sína menn, og mun vera betri en almennu samningarnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×