Innlent

Sjö innbrot í bíla um helgina

Mynd/Haraldur Jónasson
Mynd/Haraldur Jónasson
Brotist var inn í sjö bíla í Reykjavík um helgina.

Úr þeim var stolið m.a. GPS-tækjum, töskum og geislaspilara en þjófarnir voru á ferðinni í Grafarvogi, Hlíðunum og Vesturbænum.

Sem fyrr ítrekar lögreglan að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×