Erlent

Útgjöld til hernaðar ekki verið minni í áratug

Hernaður. Mynd úr safni.
Hernaður. Mynd úr safni.
Útgjöld vegna hernaðar í heiminum jukust einungis um 1,3 prósent árið 2010 samkvæmt útreikningum sænsku stofnunarinnar SIPRI sem sérhæfir sig í að reikna útgjöld til hernaðar.

Þetta eru minnstu útgjöld til hernaðar síðan árið 2001 samkvæmt stofnuninni. Suður Ameríka er sá heimshluti sem varði mestum fjármunum til hernaðar á síðasta ári.

Af einstökum ríkjum tróna Bandaríkin á toppnum  Kína er í öðru sæti og Bretar í því þriðja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×