Innlent

Ridley Scott lokar Dettifossi

Dettifoss og Ridley Scott
Dettifoss og Ridley Scott Mynd/Vísir.is
Nú standa yfir tökur á stórmyndinni Prómóþeus við Dettisfoss og hefur aðgengi almennings að fossinum verið takmarkað.

Myndin sem er í leikstjórn Ridley Scott skartar meðal annars leikkonunni Charlize Theron en um tvö hundruð manns koma að gerð myndarinnar hér á landi. Tökuliðið notast meðal annars við þyrlur til að ferja búnað á milli staða eins og sjá má á þessum myndum sem teknar voru við Dettifoss í dag.

Gert er ráð fyrir því að tökum ljúki á morgun og verður þá aftur opnað að fullu fyrir aðgengi að fossinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×