Innlent

Þyrlan sótti göngumann með hjartsláttatruflanir

Mynd úr safni
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti göngumann á Hrafntinnusker, sem er sunnan við Landmannalaugar, um klukkan sex í dag. Samkvæmt upplýsingum frá vaktstjóra hjá gæslunni var maðurinn með hjartsláttatruflanir og var brugðið á það ráð að senda þyrluna á eftir honum.

Þyrlan lenti svo við Landspítalann í Fossvogi klukkan 19:41 og fer göngumaðurinn í rannsókn á spítalanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×