Innlent

Stálust í lax við Gullinbrú - mundu svo ekki eigin nöfn

Lax
Lax Mynd úr safni
Tveir veiðimenn voru gripnir glóðvolgir við laxveiðar í Grafarvogi um miðjan dag í gær. Mennirnir, sem eru báðir um þrítugt, höfðu komið sér fyrir undir Gullinbrú og veitt tvo laxa þegar lögreglan kom á vettvang.

Þeim var vinsamlegast bent á að veiðiskapur þeirra væri brot á lögum um lax- og silungsveiði. Laxinn var haldlagður en veiðimennirnir sögðu sér til málsbóta að þeir þekktu ekki fiskana með nafni.

Sjálfir áttu þeir líka í erfiðleikum með að muna eigin nöfn og treglega gekk að draga það upp úr þeim. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×