Innlent

Sóttu lítinn handfærabát eftir að vélin í honum bilaði

Björgunarskip Landsbjargar frá Grindavík sótti í gækvöldi lítinn handfærabát, eftir að vélin í honum bilaði.

Hann var þá undan Krísuvíkurbjargi, en ekki hættulega nálægt landi. Leiðangurinn gekk vel, enda gott veður.

Töluverð sjósókn hefur verið undanfarna daga og voru til dæmis 600 skip og bátar á sjó klukkan sex í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×