Innlent

Eldur kviknaði í íbúð í Mörkinni í nótt

Eldur kviknaði í íbúð í leiguhúsnæði í Mörkinni í Reykjavík um fjögur leitið í nótt. Íbúinn vaknaði og kallaði á slökkvilið.

Þegar það kom á vettvang hafði hann náð að slökkva eldinn, en mikill reykur var í húsinu þannig að tveir reykkafarar fóru þar um til öryggis, og síðan var húsnæðið reykræst.

Eldurinn kviknaði út frá sprittkertum í borðskreytingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×