Fótbolti

Blikarnir björguðu andlitinu - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslandsmeistarar Breiðabliks eru úr leik í forkeppni Meistaradeildarinnar þrátt fyrir frábæra frammistöðu og 2-0 sigur á norsku meisturunum í Rosenborg í seinni leik liðanna í forkeppni Meistaradeildarinnar í gærkvöldi. Rosenborg vann fyrri leikinn 5-0 og því 5-2 samanlagt.

Dylan Macallister átti stórleik í liði Blika, skoraði fyrra markið eftir stungusendingu frá Kristni Jónssyni og lagði síðan upp það síðara fyrir Kristinn Steindórsson.

Þetta var sögulegt kvöld fyrir Blika því auk þess að vinna sinn fyrsta leik í Evrópukeppni þá voru þetta einnig fyrstu mörk liðsins í Evrópukeppni. Breiðabliksliðið náði ekki að skora í tveimur fyrstu Evrópuleikjum sínum á móti skoska liðinu Motherwell í fyrra.

Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leiknum á Kópavogsvellinum í gærkvöldi og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.

Mynd/Stefán



Fleiri fréttir

Sjá meira


×