Innlent

Pósturinn bregst við nýjum tímum

Ingimundur Sigurpálsson
Ingimundur Sigurpálsson
Íslandspóstur Einkaréttur Íslandspósts á bréfapósti verður afnuminn árið 2013. Fyrirtækið býr sig undir breytt rekstrarumhverfi þessi misserin.Fréttablaðið/arnþór
Rekstrarumhverfi Íslandspósts hefur breyst mikið á skömmum tíma og mun taka enn frekari breytingum á næstu árum. Stóra spurningin er hvort póstþjónusta fyrir alla landsmenn, fimm daga vikunnar, sé sjálfbær til frambúðar.

Miklar breytingar eru að verða á markaðsstöðu Íslandspósts um þessar mundir. Bréfapósti hefur fækkað töluvert frá árinu 2008, ekki síst vegna aukinnar notkunar rafræns póst, auk þess sem einkaréttur fyrirtækisins á bréfapósti rennur út árið 2013. Til að bregðast við breyttum aðstæðum hefur fyrirtækið gripið til verðhækkana en róttækari breytingar gætu fylgt í kjölfarið.

„Stóra spurningin í þessu er hvernig regluverkið í kringum póstþjónustuna mun þróast. Okkur ber núna skylda til, lögum samkvæmt, að fara inn á hvert einasta heimili fimm daga vikunnar. Við þurfum að dreifa alls staðar á landinu og þetta kostar mikla peninga,“ segir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, og heldur áfram: „Einkarétturinn á bréfapósti hefur hingað til gert okkur kleift að kosta þetta en það er spurning hvernig ríkisvaldið ætlar að standa að þessu þegar einkarétturinn verður felldur niður.“

Gjaldskrá Íslandspósts hækkaði 15. júní síðastliðinn og nam hækkunin um 20 prósentum í öllum verðflokkum. Ingimundur segir tvennt liggja að baki þessum hækkunum. Í fyrsta lagi sé Íslandspóstur að bregðast við almennum verðbreytingum í samfélaginu en jafnframt sé þetta þáttur í því að bregðast við fækkun bréfa.

„Þetta er í takt við það sem kollegar okkar í nágrannalöndunum hafa verið að upplifa og við reiknum með því að þessi þróun haldi áfram. Samkvæmt okkar spám ætti að nást einhver botn innan fimm til sjö ára þar sem bréfamagnið nær jafnvægi,“ segir Ingimundur.

Spurður hvort almenn póstþjónusta sé einfaldlega orðin tímaskekkja segist Ingimundur ekki eiga von á því að póstþjónusta verði það í fyrirsjáanlegri framtíð.

Árið 2013 verður einkaréttur Íslandspósts á bréfapósti afnuminn og segist Ingimundur reikna fastlega með því að fleiri komi inn á markaðinn í kjölfarið.

Íslandspóstur er hlutafélag, að fullu í eigu ríkisins og er eingöngu með einkarétt á dreifingu bréfa allt að 50 grömmum, en starfar að öðru leyti á samkeppnismarkaði. Um helmingur tekna fyrirtækisins kemur frá bréfapóstinum. Á Íslandi er póstþjónusta ekki ríkisstyrkt og er fyrirtækið því eingöngu rekið af tekjum sem koma frá viðskiptavinum.

magnusl@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×