Innlent

Ilmur Kristjáns styður UNICEF

Leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir hvetur fólk til að koma vannærðum börnum á þurrkasvæðunum í austurhluta Afríku til aðstoðar og styrkja hjálparstarf Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF.

Hún leggur sitt af mörkum með því að koma fram í meðfylgjandi myndbandi þar sem vakin er athygli á alvarlegri stöðu í þessum heimshluta. Rúnar Ingi Einarsson hafði veg og vanda af myndbandinu, starfsfólk Pegasus gaf vinnu sína og hljómsveitin Sigur Rós veitti góðfúslega leyfi til að lagi þeirra Ára Bátur væri notað.

Hægt er að styrkja söfnunina með því að fara inn á unicef.is eða hringja í 908-1000, 908-3000 og 908-5000. 

Smellið á tengilinn hér að ofan til að horfa á myndbandið




Fleiri fréttir

Sjá meira


×