Reynt að girða fyrir spillingu þingmanna 20. maí 2011 07:30 Níundi fundurinn. Töluverðar umræður spunnust um tillögurnar á fundi stjórnlagaráðs í gær. Mynd/GVA
Alþingismönnum verður gert óheimilt að taka þátt í afgreiðslu mála sem varða sérstaka og verulega hagsmuni þeirra eða einhverra þeim nákomnum, ef tillögur stjórnlagaráðs ná fram að ganga. Tillagan er meðal nokkurra sem kynntar voru á níunda fundi ráðsins í gær. Fleiri nýmæli eru í tillögum svokallaðrar B-nefndar ráðsins, sem fjalla um störf Alþingis. Í þeim er meðal annars kveðið á um að þingmönnum og ráðherrum verði gert skylt með lögum að skrá fjárhagslega hagsmuni sína og jafnframt að mönnum verði gert óheimilt að sinna öðrum störfum samhliða ráðherraembætti. Áður hafði verið lögð fram til kynningar tillaga um að ráðherrar þyrftu að víkja af þingi. Þá var lagt til á fundinum í gær að víkka út stjórnarskrárákvæði um heimild Alþingis til að skipa rannsóknarnefndir. Þær þurfi ekki lengur að vera skipaðar alþingismönnum eins og verið hefur, þótt rannsóknarnefndir utanþingsfólks hafi verið skipaðar með sérstökum lögum. Enn fremur er gerð tillaga um sérstaka eftirlits- og stjórnskipunarnefnd Alþingis, sem muni geta kannað hvers kyns athafnir og ákvarðanir ráðherra. Samkvæmt tillögunni verður nefndinni gert skylt að hefja rannsókn að kröfu þriðjungs þingmanna. Nefndin á sér fyrirmyndir á hinum Norðurlöndunum, einkum í Noregi, að sögn Vilhjálms Þorsteinssonar, varaformanns B-nefndar. Ein tillagan snýst um að þingmál falli ekki niður við lok hvers þings, heldur við lok kjörtímabils. Það kæmi í veg fyrir að mál sem ekki hljóta afgreiðslu þurfi að leggja fram á nýjan leik á nýju þingi og er einkum hugsað sem vernd fyrir þingmannafrumvörp, sem gjarnan mæta afgangi. Loks er lagt til að eftir að þing er rofið verði að lágmarki sex vikur að líða fram að kosningum, til að nýjum framboðum gefist færi á að undirbúa sig. Nú er aðeins kveðið á um að ekki megi líða meira en 45 dagar frá þingrofi til kosninga. Tillögurnar voru lagðar fram til kynningar og afgreiðslu inn í áfangaskjal að nýrri stjórnarskrá. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Innlent Starmer heldur neyðarfund vegna óeirðanna Erlent Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Innlent Á bólakafi í Hólmsá Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Erlent Lýsa eftir Kolbeini Vopna Innlent Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Innlent Segir af sér og flýr land Erlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Fleiri fréttir „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Lýsa eftir Kolbeini Vopna Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Óánægja með ætlað niðurrif á sögulegu húsi á Húsavík Fimm hundruð í Herjólfshöll í nótt og óöld í Bangladess Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Sjá meira