Innlent

Tryggvagata verður tvístefnugata

Úr miðbæ Reykjavíkur
Úr miðbæ Reykjavíkur
Tryggvagötu milli Lækjargötu og Pósthússtrætis verður í fyrramálið breytt í tvístefnugötu til að liðka fyrir flæði umferðar í miðborginni frá austri til vesturs. Breytingin er gerð í tilraunaskyni til eins árs og standi síðar vilji til að festa breytinguna í sessi þarf að endurskoða deiliskipulag svæðisins með það í huga.

Vinna við gatnamerkingar fer fram í nótt, aðfaranótt þriðjudagsins 26. júlí, og skiltum verður breytt í fyrramálið. Vegfarendur beðnir um að sýna aðgát meðan breytingar standa yfir. Framkvæmdin sem slík er einföld, en breyta þarf skiltum og mála yfirborð gatna.

Breytingin var samþykkt í umhverfis- og samgönguráði og staðfest í borgarráði  19. maí sl.  Rekstraraðilar á svæðinu hafa þegar verið upplýstir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×