Erlent

Þernan segir sína sögu af árás Strauss Kahn

Þernan sem Dominique Strauss Kahn fyrrum forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins réðist á hefur loks leyst frá skjóðunni og rætt hvað gerðist í hótelíbúð Strauss Kahn í New York.

Það er tímaritið Newsweek sem birtir viðtal við þernuna hina 32ja ára gömlu Nafissatou Diallo. Hún segir að þegar hún hafi komið inn í hótelíbúðina til að þrífa hana hafí Strauss Kahn ráðist á sig og þau slegist. Honum tókst síðan að þvinga hana niður á gólfið og neyða hana til munnmaka við sig.

Þernan segist helst óska þess að Strauss Kahn lendi í fangelsi þar sem peningar hans og völd hafa ekkert að segja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×