Innlent

Ölvaður velti bíl á Mosfellsheiði

Ölvaður ökumaður slapp lítið meiddur þegar hann missti stjórn á bíl sínum á Mosfellsheiði á Þingvallavegi í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn fór útaf og valt nokkrar veltur.

Eftir aðhlynningu á Heilbrigðisstofnuninni á Selfossi var hann vistaður í fangageymslum.

Þá slapp ökumaður einnig ótrúlega vel, að sögn lögreglu, eftir að bíll hans valt út af Suðurlandsvegi undir Eyjafjöllum síðdegis í gær og valt fjórar veltur uns hann hafnaði ofan í skurði. Maðurinn var fluttur á Slysadeild Landsspítalans þar sem gert var að sárum hans, en bíllin er gjörónýtur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×