Innlent

Mannlaust íbúðahús gjöreyðilagðist í eldi á Patreksfirði

Mannlaust íbúðarhús, sem verið var að gera upp á Patreksfirði, gjöreyðilagðist í eldi í nótt, en engan sakaði.

Tilkynnt var um mikinn reyk frá húsinu laust fyrir klukkan fimm í nótt og logaði mikill eldur innandyra, þegar slökkviliðið kom á vettavang.

Nálægt íbúðarhús var um tíma í hættu, en slökkviliðsmönnum tókst að verja það. Eldsupptök eru ókunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×