Innlent

Ólíklegt að erlendir aðilar bjóði í verkið

Jarðvegslosun á Hólmsheiði. Áætlað er að framkvæmdir við fangelsið á Hólmsheiði muni hefjast á fyrri hluta árs.fréttablaðið/anton
Jarðvegslosun á Hólmsheiði. Áætlað er að framkvæmdir við fangelsið á Hólmsheiði muni hefjast á fyrri hluta árs.fréttablaðið/anton

Ríkiskaup, sem veita opinberum stofnunum þjónustu og ráðgjöf á sviði útboða, ráða hvort útboðsgögn sem gefin eru út innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) eru á íslensku eða á öðrum tungumálum. Gögn fyrir framkvæmdir við fangelsið á Hólmsheiði verða birt á íslensku.

Guðmundur Hannesson, forstöðumaður ráðgjafarsviðs Ríkiskaupa, segir mun þægilegra að vinna gögnin á íslensku, einkum ef búist sé við því að flestir bjóðenda verði Íslendingar.

„Hólmsheiði er ekki stórt verkefni á erlendan mælikvarða. En það er alltaf spurning hversu langt erlendir aðilar eru tilbúnir að teygja sig, við getum auðvitað aldrei útilokað það,“ segir Guðmundur. „Það er í sjálfu sér ekki ósanngjarnt að stórir erlendir aðilar sem hafa áhuga á verkefninu láti þá bara snara gögnunum yfir á ensku fyrir sig.“

Guðmundur segir að í þeim tilvikum sem útboðsgögn hafi verið birt á ensku hafi verið vitað um áhuga tiltekinna erlendra aðila. Þá hafi sú ákvörðun verið tekin að vinna gögnin í einu lagi á ensku, til þess að margir aðilar þurfi ekki að þýða gögnin hver í sínu horni. Einnig bendir Guðmundur á að íslenskir tæknifræðingar eigi nánast eins auðvelt með að skilja ensku og íslensku.

Samtök iðnaðarins lýstu yfir óánægju sinni í febrúar í fyrra, þegar Ríkiskaup birtu útboðsgögn á ensku vegna kaupa á nýjum innréttingum í Háskóla Íslands. Guðmundur segir erlendan aðila hafa sýnt því verki áhuga fyrir fram og því hafi gögnin verið unnin á ensku. Einnig hefðu hátæknileg atriði getað misfarist í þýðingum úr íslensku, en um ýmis tæki og tól á rannsóknarstofu HÍ var að ræða.

„Burtséð frá öllu er meginmarkmiðið hjá okkur alltaf að fá besta og hagstæðasta verðið,“ segir Guðmundur.

Vinnu Ríkiskaupa við útboðsgögn fangelsisins er nánast lokið, en beðið er eftir grænu ljósi hjá innanríkisráðuneytinu til birtingar. Jón Magnússon, skrifstofustjóri ráðuneytisins, segir vinnu enn vera í gangi hjá Framkvæmdasýslu ríkisins, sem er að skrifa útboðslýsingu annars vegar og byggingarlýsingu hins vegar. Sú vinna ætti að taka 3 til 4 vikur.

sunna@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×