Fótbolti

Eggert Gunnþór mætir Tottenham - Eiður á slóðir KR-inga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eggert Gunnþór, til hægri, í leik með Hearts gegn Rangers í síðasta mánuði.
Eggert Gunnþór, til hægri, í leik með Hearts gegn Rangers í síðasta mánuði. Nordic Photos / Getty Images
Eggert Gunnþór Jónsson og félagar í skoska liðinu Hearts drógust gegn Tottenham í lokaumferð forkeppni Evrópudeildar UEFA í morgun.

AEK Aþena, lið Eiðs Smára Guðjohnsen, drógst gegn Dinamo Tbilisi frá Georgíu sem sló KR-inga úr leik í síðustu umferð sem lauk í gærkvöldi.

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í AZ Alkmaar frá Hollandi mæta norska liðinu Álasund.

CD Nacional, sem sló FH úr leik fyrr í sumar, mætir Birmingham frá Englandi og Rosenborg, sem vann Breiðablik í forkeppni Meistaradeildarinnar, leikur gegn AEK Larnaca frá Kýpur.

Fulham mætir úkraínska liðinu Dnipro og Stoke drógst gegn svissneska liðinu Thun. Meðal annarra viðureigna má nefna rimmu Hannover 96 og Sevilla.

Alls voru 76 lið í pottinum í dag og sigurvegarar viðureignanna 38 komast áfram í sjálfa riðlakeppnina, ásamt tíu liðum sem tapa sínum viðureignum í lokaumferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu, en dregið var í hana í morgun.

Leikirnir fara fram dagana 18. og 25. ágúst næstkomandi.

Leikirnir:

Maccabi Tel Aviv - Panathinaikos

Atletico Madrid - Vitoria SC

Shamrock Rovers - Partizan Belgrad

Metalist Kharkov - Sochaux

Besiktast - Alania

Rosenborg - AEK Larnaca

Vorskia - Dinamo Búkarest

Bursaspor - Anderlecht

Roma - Slovan Bratislava

Olympiakos - Paris St. Germain

Legia Varsjá - Spartak Moskva

Ekranas Kaunas - Hapoel Tel Aviv

PAOK - Karpaty

Trabzonspor - Athletic Bilbao

Hearts - Tottenham

Maribor - Glasgow Rangers

Steaua Búkarest - CSKA Sofia

Nordsjælland - Sporting Lissabon

Dnipro - Fulham

Lokomotiv Moskva - Spartak Trnava

Sion - Celtic

Slask - Rapíd Búkarest

Litex - Dynamo Kiev

Lazio - Rabotnicki

CD Nacional - Birmingham

PSV - Ried

Thun - Stoke

Álasund - AZ Alkmaar

Vaslui - Sparta Prag

Omonia - Salzburg

Zestafoni - Club Brugge

Hannover - Sevilla

HJK Helsinki - Schalke

Dinamo Tbilisi - AEK Aþena

Rennes - Crvena zvezda

Gaz Metan - Austria Vín

Braga - Young Boys

Standard Liege - Helsingborg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×