ESB vill ekki höfnun Íslands 14. janúar 2011 06:00 Baldur Þórhallsson. Prófessorinn ávarpaði fund utanríkismálanefndar Evrópuþingsins í gær.
Evrópuþingmenn á opnum fundi utanríkismálanefndar Evrópuþingsins, sem fjallaði um aðildarferli Íslands, lýstu yfir miklum skilningi á sérstöðu Íslands í gær, að sögn Baldurs Þórhallssonar prófessors sem ávarpaði fundinn. Fundurinn er liður í stefnumótun þingsins um aðildarviðræður Íslands. „Það var rætt um að Ísland væri minnsta ríkið sem hefði sótt um aðild og um leið það ríkasta. Í þriðja lagi sé Ísland það land sem er mest aðlagað að ESB, sem nokkurn tíma hefur sótt um aðild. Ekkert umsóknarríki hafi verið eins vel undirbúið," segir Baldur. Þingmenn hafi sagst vel skilja neikvæðni á Íslandi gagnvart aðild og vilji allt fyrir Ísland gera. Um þessar mundir er ESB veikt fyrir vegna efnahagskrísunnar og Íslendingar hagnast á því, að mati prófessorsins. ESB hafi ekki efni á því að umsóknarríki hafni aðild. „Menn hafa áhyggjur af því að ef Ísland hafnar inngöngu í þjóðaratkvæðagreiðslu gæti það haft neikvæð og afdrifarík áhrif. Menn vilja ekki sjá norskt nei á Íslandi," segir Baldur og vísar til þess að Norðmenn hafa tvisvar hafnað aðild að ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Staða okkar í viðræðum er því betri núna en hún hefði verið fyrir nokkrum árum," segir hann. - kóþ
Mest lesið Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum Innlent Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Innlent „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Innlent Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Innlent Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Innlent Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Innlent Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Fleiri fréttir Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Sjá meira