Innlent

Bauð Flóahreppi að staðfesta hluta skipulags

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra. Mynd/Valli

Umhverfisráðuneytið hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fullyrðinga sveitarstjóra Flóahrepps í hádegisfréttum Bylgjunnar þess efnis að framkvæmdir í sveitarfélaginu hefðu legið í láginni vegna ákvörðunar umhverfisráðherra að staðfesta ekki aðalskipulag sveitarfélagsins á sínum tíma. Sagði sveitarstjórinn að ekki hefði verið hægt að deiliskipuleggja, ekki hægt að byggja við hús, útihús og í raun ekkert hægt að gera. Svona hafi ástandið verið í tvö ár.

Í yfirlýsingu ráðuneytisins segir:

"Í ákvörðun umhverfisráðherra frá janúar 2010 um aðalskipulag Flóahrepps kom fram að synja bæri um staðfestingu á þeim hluta aðalskipulagsins sem varðaði Urriðafossvirkjun og kom fram í ákvörðun ráðherra að ráðuneytið myndi staðfesta aðra hluta skipulagsins þegar sveitarstjórn hefði sent skipulagsuppdrætti í samræmi við ákvörðun ráðherra. Því gat sveitarfélagið óskað eftir staðfestingu ráðherra á skipulaginu án Urriðafossvirkjunar í kjölfar þeirrar ákvörðunar. Sveitarfélagið kaus hins vegar að fara af stað í nýtt skipulagsferli vegna Aðalskipulags Flóahrepps og er vinnu við það ekki lokið."

Samkvæmt dómi Hæstaréttar í gær var sú leið, sem umhverfisráðherra bauð Flóahreppur að fara, ekki í samræmi við lög en í dómnum segir:

"Hvergi var í lögunum að finna heimild til þess að undanskilja ákveðin svæði innan sveitarfélags aðalskipulagi. Í 1. mgr. 20. gr. laganna var hins vegar þröng heimild til handa sveitarstjórn, að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar og með samþykki ráðherra, að fresta um ákveðið árabil, þó ekki lengur en fjögur ár í senn, gerð aðalskipulagsáætlunar fyrir ákveðið svæði. Þá gat ráðherra samkvæmt 2. mgr. sömu greinar að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar frestað, þó ekki lengur en fjögur ár í senn, staðfestingu á aðalskipulagi fyrir ákveðið landsvæði ef nauðsyn þætti til að samræma betur skipulagsálætlanir aðliggjandi sveitarfélaga. Mikilvæg réttaröryggissjónarmið eru að baki því að setja heimildum stjórnvalda til að halda landsvæðum utan aðalskipulags þröng mörk, bæði hvað varðar forsendur slíkra ákvarðana og tímalengd þeirra, enda getur í þeim falist að þungbær höft séu í reynd lögð á nýtingu viðkomandi svæðis. Verður að skýra 2. og 3. mgr. 19. gr. laganna með hliðsjón af þessum ákvæðum þannig að ráðherra hafi ekki verið heimilt að synja um staðfestingu aðalskipulags að hluta," segir í dómi Hæstaréttar.


Tengdar fréttir

Flóahreppur íhugar skaðabótamál gegn Svandísi

Sveitarstjóri Flóahrepps segir að hreppurinn muni kanna grundvöll þess að höfða skaðabótamál á hendur Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra vegna þess tjóns sem tveggja ára töf á aðalskipulagi hefur valdið.

Mikill áfellisdómur yfir stjórnsýslu ráðherra

Hæstiréttur Íslands komst að þeirri niðurstöðu í dag að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefði brotið lög þegar hún neitaði að staðfesta aðalskipulag vegna Urriðafossvirkjunar. Mikill áfellisdómur yfir stjórnsýslu ráðherrans, segir lögmaður Flóahrepps.

Synjun umhverfisráðherra ógilt

Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem synjun Svandísar Svavars­dóttur umhverfisráðherra á þeim hluta aðalskipulags Flóahrepps er varðar Urriðafossvirkjun er ógilt. Svandís áfrýjaði málinu í október síðastliðnum eftir að hún tapaði í héraði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×