Innlent

Trúnaðarbrestur innan stjórnar Borgarahreyfingarinnar

Guðmundur Andri ber af sér sakir
Guðmundur Andri ber af sér sakir Mynd Valgarð
Alvarlegur trúnaðarbrestur hefur komið upp innan stjórnar Borgarahreyfingarinnar og skora aðrir stjórnarmenn á Guðmund Andra Skúlason að segja sig úr stjórn hreyfingarinnar. Áskorun þessi var bókuð á stjórnarfundi sem haldinn var í gær.

Þar kom fram gagnrýni á meðferð Guðmundar Andra á fjármálum félagsins og formanni falið að koma bókhaldsgögnum hreyfingarinnar til endurskoðanda sem fyrst.

Guðmundur Andri sendi í framhaldinu frá sér ítarlega skýrslu og yfirlýsingu þar sem hann segir ásakanirnar ekki eiga við rök að styðjast, og að um sé að ræða grófa aðför að heiðri hans.

Fundargerð stjórnarfundar má nálgast með því að smella hér.

Hér er síðan yfirlýsing og greinargerð Guðmundar Andra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×