Erlent

Sá hann grínmyndina af Múhameð?

Óli Tynes skrifar
Talibanar ganga flestir með vefjarhetti.
Talibanar ganga flestir með vefjarhetti.
Borgarstjórinn í Kandahar í Afganistan var myrtur í sjálfsmorðssprengingu í morgun. Morðinginn hafði komið sprengjunni fyrir í vefjarhetti sínum.

 

Ekki er vitað hvort hann fékk hugmyndina frá teikningu danska skopteiknarans Knuts Vestergaard, en múslimar hafa oftar en einusinni reynt að myrða hann eftir að hann teiknaði Múhameð spámann með sprengju í vefjarhetti sínum.

 

Talibanar eru farnir að leggja sig eftir háttsettum mönnum til þess að myrða. Stutt er síðan bróðir Hamids Karzais forseta var myrtur. Einn helsti ráðgjafi hans var einnig myrtur fyrir skömmu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×