Vilja að forseti haldi málskotsréttinum HA skrifar 27. júlí 2011 12:15 Fulltrúar stjórnlagaráðs Mynd GVA
Forseti Íslands heldur málskotsrétti sínum en hann á ekki að sitja lengur en þrjú kjörtímabil. Þetta kemur fram í drögum að nýrri stjórnarskrá sem samþykkt voru í stjórnlagaráði í morgun. Síðasti fundur ráðsins fer fram í dag. Fundir stóðu yfir í stjórnlagaráði í gær og búist er við öðru eins í dag. Í gær voru samþykktir þrír kaflar sem fjölluðu um undirstöður stjórnkerfisins, mannréttindi og náttúru og Alþingi. Fjórði kaflinn sem fjallar um forseta Íslands var svo samþykktur í morgun. Forsetakaflinn er alls 10 ákvæði sem eru mun færri en í núgildandi stjórnarskrá. Í Alþingiskaflanum er kveðið á um að forsetinn haldi málskotsrétti sínum. Heimild til synjunar á ekki við um fjárlög, fjáraukalög og lög um skattamálefni, lög um ríkisborgararétt og lög sem sett eru til að framfylgja þjóðréttarskuldbindingum. Þá kemur fram í forsetakaflanum að forseti skuli ekki sitja lengur en þrjú kjörtímabil. Þá er kveðið á um að forseti Alþingi sé staðgengill forseta Íslands geti hann ekki gegnt störfum sínum um sinn vegna heilsufars eða öðrum ástæðum. Í núgildandi stjórnarskrá eru staðgenglar forsetans þrír. Eftir eru fimm kaflar sem á eftir að samþykkja og þeir fjalla um ráðherra og ríkisstjórn, dómsvald, sveitarfélög, utanríkismál og lokaákvæði. Búist er við að þeir verði samþykktir í dag á síðasta fundi stjórnlagaráðs og boðað verður til formlegs blaðamannafundur um lokaniðurstöðu ráðsins á föstudag. Stjórnlagaráðsfulltrúar vilja svo að þjóðin eigi að taka afstöðu til nýrra draga að stjórnarskránni. En Pétur Blöndal þingmaður sjálfstæðisflokksins segir hins vegar að það sé ekki hægt samkvæmt 79. grein núgildandi stjórnarskrár.
Mest lesið Ofbeldi verði að lokum eina svarið gegn „cancel culture og vók hyski“ Innlent Skólastjóri Rimaskóla í áfalli Innlent Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Innlent Pólitískur leiðtogi Hamas ráðinn af dögum í Íran Erlent Tugir lögregluþjóna slasaðir eftir óeirðir öfgamanna í Southport Erlent Solaris misnoti kerfið til að hrekja Helga Magnús úr starfi Innlent Segist ekki geta ábyrgst öryggi þeirra sem dvelja næturlangt í Grindavík Innlent Ekki hrifin af breytingum en óskar Höllu velfarnaðar Innlent Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Innlent Hjólhýsi sem búið var í að engu orðið Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Vesturlandsvegi Embættistaka forseta, veðrið um helgina og skrýtnar gistináttatölur Hjólhýsi sem búið var í að engu orðið Ekki hrifin af breytingum en óskar Höllu velfarnaðar Skólastjóri Rimaskóla í áfalli Ástand vega á Íslandi mikið áhyggjuefni Verulega hvasst í Eyjum á laugardaginn Solaris misnoti kerfið til að hrekja Helga Magnús úr starfi Segist ekki geta ábyrgst öryggi þeirra sem dvelja næturlangt í Grindavík Rúður brotnar í Rimaskóla Ofbeldi verði að lokum eina svarið gegn „cancel culture og vók hyski“ Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Flutningabíll varð alelda í Þrengslum Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum „Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“ Feðgar með 90 ára reynslu á elstu og minnstu rakarastofu landsins Hjólhýsið fuðraði upp „Ekki við hæfi“ að dómsmálaráðherra tjái sig um mál Helga Umdeild ummæli, líkur á gosi og truflandi skilti „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Vonar að ráðherra verði ekki við ósk Sigríðar Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Svona verða hátíðarhöldin á fimmtudaginn Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Kobbi Láki kom stýrisvana skútu til bjargar Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Sjá meira