Innlent

Varað við hruni í Kverkfjöllum

Daglega hrynur meira og minna úr ísstálinu fyrir ofan íshellinn í Kverkfjöllum, að sögn landvarða í Sigurðarskála og getur verið stór hættulegt að vera þar á ferð. Þar varð banaslys í vor vegna hruns.

Ferðamálastofa hvetur ferðaþjónustuaðila og leiðsögumenn  til að brýna þessar hættur fyrir fólki á þeirra vegum og taka fullt mark á varúðaskiltum. Talið er að stór fylla kunni að hrynja úr jöklinum á hverri stundu.-  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×