Erlent

Danskir þjóðernissinnar æfa vopnaburð í Rússlandi

Hópur af dönskum þjóðernissinnum sem tilheyra samtökunum Danmarks Nationale Front hafa æft vopnaburð og skotfimi hjá Slavneska bræðralaginu helstu nýnasista- og hægriöfgasamtökum Rússlands.

Á heimsíðu Danmarks Nationale Front má sjá myndir af þessum Dönum með skotvopn af ýmsum gerðum. Fyrrum yfirmaður leyniþjónustu dönsku lögreglunnar segir að þessar upplýsingar séu ógnvekjandi.

Slavneska bræðralagið er þekkt fyrir kaldrifjuð vinnubrögð þegar kemur að drápum á fólki sem því er í nöp við.

Talsmaður Danmarks Nationale Front reynir að gera lítið úr málinu og segir í samtali við Ekstra Bladet að þeir hafi aðeins verið á villisvínaveiðum með rússneskum vinum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×