Erlent

Miklar aurskriður kosta tíu lífið í Suður Kóreu

Að minnsta kosti tugur manna hefur farist í aurskriðum í fjallendi í Suður Kóreu. Mikið úrhelli undanfarna daga hefur valdið aurskriðum í fjalllendinu sem er í um 100 km fjarlægð austur af Seoul höfuðborg landsins.

Eignartjónið er gífurlegt en fjalllendið er vinsæll ferðamannastaður í landinu. Hótel, veitingahús og barir hafa eyðilagst í aurskriðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×