Innlent

Rífandi gangur í strandveiðunum

Strandveiðarnar hafa aldrei gengið eins vel og núna í júlí og aflinn hefur aldrei verið meiri.

Veiðarnar á norðursvæðinu og á austursvæðinu voru stöðvaðar á miðnætti þar sem bátarnir voru búnir með júlíkvótann. Veiðarnar verða líka stöðvaðar á suðursvæðinu á miðnætti í kvöld en kvótinn á Vestursvæðinu kláraðist þrettánda þessa mánaðar og hefur ekki verið veitt þar síðan.

Þetta er í fyrsta sinn í sumar sem kvótar klárast á öllum svæðunum fyrir mánaðamót, og það þrátt fyrir að aukið hafi verið við strandveiðikvótann í júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×