Gosið sást greinilega frá Reykjavík Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. maí 2011 06:38 Sveinn Þorsteinsson tók þessa mynd við Veðurstofuna í Öskjuhlíð.
Gosið úr Grímsvötnum sást greinilega víða á landinu í gærkvöld. Meðal annars í Reykjavík. Sveinn Þorsteinsson, lesandi Vísis, var staddur í Öskjuhlíð í gærkvöld og tók þá þessa mynd af gosmekkinum. Þá sendi íbúi á Vatnsenda skilaboð til Vísis í gærkvöld og sagðist sjá gosmökkinn greinilega. Hann sá hvar efsti hluti mökksins steig upp fyrir skýjabakkann og eldingar sáust öðru hverju. Aukafréttatími verður á Stöð 2 á hádegi í dag, sunnudag, vegna eldgossins. Þá verður sagt frá gangi mála, meðal annars flugsamgöngum, í morgunfréttum Bylgjunnar klukkan tíu. Að sjálfsögðu verður svo sagt frá öllu því helsta hér á Vísi allan daginn.
Helstu fréttir Tengdar fréttir Aska fellur víða til jarðar Aska hefur fallið víða í byggð í nágrenni Vatnajökuls og hefur talsvert verið um öskufall á Kirkjubæjarklaustri og sveitinum í kringum. Einnig hefur orðið vart við öskufall á Höfn í Hornarfirði. Askan er fín og berst til suðausturs. Líkt og Vísir greindi frá fyrr í kvöld hvetja almannavarnir íbúa á svæðinu í nágreni Vatnajökuls að halda sig innan dyra vegna eldgossins í Grímsvötnum sem hófst á sjöunda tímanum í kvöld. 21. maí 2011 23:19 Gosmökkurinn sést víða Gosmökkurinn frá Grímsvötnum í Vatnajökli sést víða og hefur risið hratt frá því að hans varð vart. Íbúar á Selfossi, Laugarvatni og Flúðum eru meðal þeirra sem haft hafa samband við fréttastofu síðustu mínútur. Samkvæmt sjónarvottum á Flúðum er mökkurinn dökkur neðst en að mestu hvítur. Samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum sést mökkurinn einnig frá Skaftafelli, Vík og víðar á Suðurlandi. 21. maí 2011 19:40 Gosmökkurinn sést frá Reykjavík Gosið í Grímsvötnum virðist vera mjög öflugt, segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við Vísi. Hann segir að mökkurinn sjáist alla leið frá Reykjavík. 21. maí 2011 22:07 Starfsmenn Vegagerðarinnar bíða átekta Engin ákvörðun hefur verið tekin um að loka vegum vegna eldgossins sem hófst í Grímsvötnum í Vatnajökli á sjöunda tímanum í kvöld. Starfsmenn starfsstöðva Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornarfirði bíða átekta. "Við fylgjumst með þróuninni,“ sagði Bjarni Jón Finnsson, yfirverkstjóri í Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal, í samtali við fréttastofu. Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir hvort loka þurfi vegum eða rjúfa skörð í vegi. 21. maí 2011 21:33 Allir viðbragðsaðilar komnir af stað vegna gossins "Það er búið að setja allt í gang, almannavarnir og búið að tilkynna þetta erlendis,“ segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, skjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir að strókurinn frá gosinu sjáist víða af á landinu. "Hann sést jafnvel frá Selfossi,“ segir Hjörleifur. Því sé ekki um að villast að gosið sé hafið. Hins vegar sé ekki ljóst hversu mikið gosið sé. Verið sé að undirbúa flug til að sjá gosið og finna nákvæma staðsetningu þess. Allt bendi hins vegar til þess að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:41 Gosmökkurinn er rosa sjónarspil "Það er rosa sjónarspil að sjá þetta,“ segir Laufey Stefánsdóttir, sem er stödd ásamt fjölskyldu og vinum í sumarbústaðnum sínum á Hellu. Hún segir að gosmökkurinn sjáist mjög vel þaðan. Gos hófst i Vatnajökli rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Eins og fram kom á Vísi fyrr í kvöld eru viðbragðsaðilar á leið í flug á eftir til að greina nánar staðsetningu þess, en langlíklegast þykir að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:55 Tengja gosið ekki heimsendaspám Það hljóp aldeilis á snærið hjá gestum á Islandia Hótel á Núpum nærri Kirkjubæjarklaustri. Gestirnir, sem eru frá Hollandi og Frakklandi, auk Íslendinga, höfðu ekki átt von á því að verða vitni að eldgosi þegar þeir pöntuðu sér gistingu. Þeim brá því heldur betur í brún þegar Vatnajökull tók að gjósa um sjöleytið í kvöld. Líklegast er að það séu Grimsvötn sem gjósi, eins og fram hefur komið. 21. maí 2011 20:39 Eldgos að hefjast í Grímsvötnum Á sjöunda tímanum í kvöld komu fram merki á jarðskjálftamælum um að eldgos gæti verið að hefjast eða er hafið í Grímsvötnum í Vatnajökli. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið virkjuð vegna þessa. Frekari upplýsingar verða gefnar um leið og þær berast, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum 21. maí 2011 19:06 Gosmökkurinn mikill og öskufall víða Askan frá eldgosinu í Grímsvötnum er nú farin að dreifa sér víða eins og sést á þessari mynd sem Vihelm Gunnarsson ljósmyndari tók af lögreglumanni á Kirkjubæjarklaustri. Almannavarnir hafa sent frá sér viðvörun vegna öskufalls frá gosinu. 21. maí 2011 00:01 Búist við hlaupi í Grímsvötnum "Það má búast við einhverju hlaupi í Grímsvötnum vegna gossins,“ segir Matthew Roberts, vatnamælingamaður hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir þó að það liggi fyrir að vegna þess að það varð jökulhlaup í Grímsvötnum í nóvember í fyrra þá sé hugsanlegt að hlaupið verði ekki stórt. "Spurningin er núna hvar gosið er. Við vitum það ekki fyrir víst hvar það er," segir Matthew. 21. maí 2011 21:21 Eldgos í Grímsvötnum staðfest „Það sést til gosmakkar. Þannig að það er staðfest að eldgos er hafið," segir Víðir Reynisson, hjá almannavörnum Ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi. Hann segir ómögulegt að segja til um það hversu mikið gosið er. 21. maí 2011 19:26 Flogið um Keflavíkurflugvöll þrátt fyrir gosið Eldgosið í Vatnajökli kemur ekki í veg fyrir að hægt sé að lenda á eða taka á loft á Keflavíkurflugvelli, segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia. 21. maí 2011 20:53 Ekki þörf á fólksflutningum vegna gossins Lögreglan á Hvolsvelli og í Vík fylgist með umferð um Þjóðveg 1 vegna eldgossins í Grímsvötnum, samkvæmt upplýsingum frá Sveini Kristjáni Rúnarssyni yfirlögregluþjóni. Hann segir þó að ekki sé þörf á því að rýma nein hús í nágrenni við Vatnajökul vegna gossins. Aðstæður eru því allt öðruvísi í þessu gosi en var fyrir rúmu ári síðan þegar Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökull gusu. Þá urðu mestu fólksflutningar á Íslandi frá þvi í Heimaeyjargosi árið 1973. 21. maí 2011 20:13 Veginum um Skeiðarársand lokað Veginum um Skeiðarársand hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum og hófst fyrr í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 21. maí 2011 21:37 Mun öflugra gos en 2004 "Þetta er mun öflugra gos en árið 2004. Það sést á hæð gosmakkarins og öskudreifingu,“ segir Björn Oddsson, jarðfræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Björn var að koma úr flugi yfir gosstöðvarnar. Í fluginu voru fulltrúar helstu viðbragðsaðila vegna eldgossins. 21. maí 2011 23:16 Keflavíkurflugvöllur opinn til sjö Keflavíkurflugvöllur verður opinn fram til klukkan sjö og þá verður staðan metin að nýju. Sama gildir um innanlandsflug. Staðan fyrir daginn verður svo metin aftur eftir það. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu sem almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra sendi frá sér nú í nótt. Eldgos hófst í Grímsvötnum um klukkan sjö í gærkvöld og var samhæfingamiðstöðin í Skógarhlíð samstundis virkjuð vegna hennar. 22. maí 2011 06:12 Íbúum bent á að halda sig innan dyra Vegna eldgossins í Grímsvötnum hefur orðið vart við öskufall á Kirkjubæjarklaustri og fleiri stöðum á Suðurlandi. Askan er mjög fín og berst hún til suðausturs. Almannavarnir benta íbúum á svæðinu að halda sig innan dyra og kynna sér bækling um öskufall sem hægt er að nálgast á heimasíðu almannavarna. Bændum er ráðlagt að huga að búsmala allt vestan frá Síðu og austur fyrir Reynivelli. 21. maí 2011 22:21 Mest lesið Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa Innlent Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Innlent Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Erlent Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Innlent Engin gögn bendi til tengsla við Hamas Innlent „Í mínum huga alveg útilokað“ Innlent Gremja vegna golfbíla á meistaramóti Innlent Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Erlent Lögreglan kölluð til er hundur lék lausum hala á Reykjanesbrautinni Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Fleiri fréttir Fólk geti verið með fleiri en einn kynsjúkdóm Skjálfandafljót verði ekki virkjað á næstunni Mikill meirihluti þjóðarinnar styður aðildarviðræður við ESB Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Sjúklingur réðst á lækni sem fær ekki bætur frá ríkinu Lauginni lokað eftir að lögn fór í sundur Gremja vegna golfbíla á meistaramóti Lögreglan kölluð til er hundur lék lausum hala á Reykjanesbrautinni Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Engin gögn bendi til tengsla við Hamas Mikil fjölgun í greiningum á sárasótt og lekanda Leggja til íbúakosningu vegna framkvæmda Carbfix Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa „Í mínum huga alveg útilokað“ Sveitastrákur mætir með byssuna sína á Ólympíuleikana Stærðarinnar skilti sem ekkert má sýna Jarðgöng undir Miklubraut fýsilegri kostur Óhjákvæmilegt fyrir stjórnvöld að grípa inn í Milljarðar streyma úr landi með starfsemi veðmálafyrirtækja Lagabreytingin vegi að eldri borgurum og öryrkjum erlendis Vestmannaeyjabær höfðar skaðabótamál á hendur Vinnslustöðinni Bóndi þvingaður til að afhenda hrút Segja Ásgeir Helga hafa verið 20 mínútur í stæðinu Segja Grindavík alls ekki ónýta og vilja hleypa fólki inn Fjórar ferðir vegna heilbrigðisþjónustu fást nú endurgreiddar Skemmdu bíla í reiðiskasti áður en þeir flúðu lögreglu á rafskútu Dýrmætu vasaúri og silfurfesti stolið af byggðasafni „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Rannsókn lokið á máli sem snýr að Polar Nanoq Sjá meira
Aska fellur víða til jarðar Aska hefur fallið víða í byggð í nágrenni Vatnajökuls og hefur talsvert verið um öskufall á Kirkjubæjarklaustri og sveitinum í kringum. Einnig hefur orðið vart við öskufall á Höfn í Hornarfirði. Askan er fín og berst til suðausturs. Líkt og Vísir greindi frá fyrr í kvöld hvetja almannavarnir íbúa á svæðinu í nágreni Vatnajökuls að halda sig innan dyra vegna eldgossins í Grímsvötnum sem hófst á sjöunda tímanum í kvöld. 21. maí 2011 23:19
Gosmökkurinn sést víða Gosmökkurinn frá Grímsvötnum í Vatnajökli sést víða og hefur risið hratt frá því að hans varð vart. Íbúar á Selfossi, Laugarvatni og Flúðum eru meðal þeirra sem haft hafa samband við fréttastofu síðustu mínútur. Samkvæmt sjónarvottum á Flúðum er mökkurinn dökkur neðst en að mestu hvítur. Samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum sést mökkurinn einnig frá Skaftafelli, Vík og víðar á Suðurlandi. 21. maí 2011 19:40
Gosmökkurinn sést frá Reykjavík Gosið í Grímsvötnum virðist vera mjög öflugt, segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við Vísi. Hann segir að mökkurinn sjáist alla leið frá Reykjavík. 21. maí 2011 22:07
Starfsmenn Vegagerðarinnar bíða átekta Engin ákvörðun hefur verið tekin um að loka vegum vegna eldgossins sem hófst í Grímsvötnum í Vatnajökli á sjöunda tímanum í kvöld. Starfsmenn starfsstöðva Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornarfirði bíða átekta. "Við fylgjumst með þróuninni,“ sagði Bjarni Jón Finnsson, yfirverkstjóri í Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal, í samtali við fréttastofu. Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir hvort loka þurfi vegum eða rjúfa skörð í vegi. 21. maí 2011 21:33
Allir viðbragðsaðilar komnir af stað vegna gossins "Það er búið að setja allt í gang, almannavarnir og búið að tilkynna þetta erlendis,“ segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, skjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir að strókurinn frá gosinu sjáist víða af á landinu. "Hann sést jafnvel frá Selfossi,“ segir Hjörleifur. Því sé ekki um að villast að gosið sé hafið. Hins vegar sé ekki ljóst hversu mikið gosið sé. Verið sé að undirbúa flug til að sjá gosið og finna nákvæma staðsetningu þess. Allt bendi hins vegar til þess að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:41
Gosmökkurinn er rosa sjónarspil "Það er rosa sjónarspil að sjá þetta,“ segir Laufey Stefánsdóttir, sem er stödd ásamt fjölskyldu og vinum í sumarbústaðnum sínum á Hellu. Hún segir að gosmökkurinn sjáist mjög vel þaðan. Gos hófst i Vatnajökli rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Eins og fram kom á Vísi fyrr í kvöld eru viðbragðsaðilar á leið í flug á eftir til að greina nánar staðsetningu þess, en langlíklegast þykir að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:55
Tengja gosið ekki heimsendaspám Það hljóp aldeilis á snærið hjá gestum á Islandia Hótel á Núpum nærri Kirkjubæjarklaustri. Gestirnir, sem eru frá Hollandi og Frakklandi, auk Íslendinga, höfðu ekki átt von á því að verða vitni að eldgosi þegar þeir pöntuðu sér gistingu. Þeim brá því heldur betur í brún þegar Vatnajökull tók að gjósa um sjöleytið í kvöld. Líklegast er að það séu Grimsvötn sem gjósi, eins og fram hefur komið. 21. maí 2011 20:39
Eldgos að hefjast í Grímsvötnum Á sjöunda tímanum í kvöld komu fram merki á jarðskjálftamælum um að eldgos gæti verið að hefjast eða er hafið í Grímsvötnum í Vatnajökli. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið virkjuð vegna þessa. Frekari upplýsingar verða gefnar um leið og þær berast, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum 21. maí 2011 19:06
Gosmökkurinn mikill og öskufall víða Askan frá eldgosinu í Grímsvötnum er nú farin að dreifa sér víða eins og sést á þessari mynd sem Vihelm Gunnarsson ljósmyndari tók af lögreglumanni á Kirkjubæjarklaustri. Almannavarnir hafa sent frá sér viðvörun vegna öskufalls frá gosinu. 21. maí 2011 00:01
Búist við hlaupi í Grímsvötnum "Það má búast við einhverju hlaupi í Grímsvötnum vegna gossins,“ segir Matthew Roberts, vatnamælingamaður hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir þó að það liggi fyrir að vegna þess að það varð jökulhlaup í Grímsvötnum í nóvember í fyrra þá sé hugsanlegt að hlaupið verði ekki stórt. "Spurningin er núna hvar gosið er. Við vitum það ekki fyrir víst hvar það er," segir Matthew. 21. maí 2011 21:21
Eldgos í Grímsvötnum staðfest „Það sést til gosmakkar. Þannig að það er staðfest að eldgos er hafið," segir Víðir Reynisson, hjá almannavörnum Ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi. Hann segir ómögulegt að segja til um það hversu mikið gosið er. 21. maí 2011 19:26
Flogið um Keflavíkurflugvöll þrátt fyrir gosið Eldgosið í Vatnajökli kemur ekki í veg fyrir að hægt sé að lenda á eða taka á loft á Keflavíkurflugvelli, segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia. 21. maí 2011 20:53
Ekki þörf á fólksflutningum vegna gossins Lögreglan á Hvolsvelli og í Vík fylgist með umferð um Þjóðveg 1 vegna eldgossins í Grímsvötnum, samkvæmt upplýsingum frá Sveini Kristjáni Rúnarssyni yfirlögregluþjóni. Hann segir þó að ekki sé þörf á því að rýma nein hús í nágrenni við Vatnajökul vegna gossins. Aðstæður eru því allt öðruvísi í þessu gosi en var fyrir rúmu ári síðan þegar Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökull gusu. Þá urðu mestu fólksflutningar á Íslandi frá þvi í Heimaeyjargosi árið 1973. 21. maí 2011 20:13
Veginum um Skeiðarársand lokað Veginum um Skeiðarársand hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum og hófst fyrr í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 21. maí 2011 21:37
Mun öflugra gos en 2004 "Þetta er mun öflugra gos en árið 2004. Það sést á hæð gosmakkarins og öskudreifingu,“ segir Björn Oddsson, jarðfræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Björn var að koma úr flugi yfir gosstöðvarnar. Í fluginu voru fulltrúar helstu viðbragðsaðila vegna eldgossins. 21. maí 2011 23:16
Keflavíkurflugvöllur opinn til sjö Keflavíkurflugvöllur verður opinn fram til klukkan sjö og þá verður staðan metin að nýju. Sama gildir um innanlandsflug. Staðan fyrir daginn verður svo metin aftur eftir það. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu sem almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra sendi frá sér nú í nótt. Eldgos hófst í Grímsvötnum um klukkan sjö í gærkvöld og var samhæfingamiðstöðin í Skógarhlíð samstundis virkjuð vegna hennar. 22. maí 2011 06:12
Íbúum bent á að halda sig innan dyra Vegna eldgossins í Grímsvötnum hefur orðið vart við öskufall á Kirkjubæjarklaustri og fleiri stöðum á Suðurlandi. Askan er mjög fín og berst hún til suðausturs. Almannavarnir benta íbúum á svæðinu að halda sig innan dyra og kynna sér bækling um öskufall sem hægt er að nálgast á heimasíðu almannavarna. Bændum er ráðlagt að huga að búsmala allt vestan frá Síðu og austur fyrir Reynivelli. 21. maí 2011 22:21