Lítið brot mála gegn lögreglu endar í dómi 22. maí 2011 16:00 Á fimm ára tímabili rannsakaði ríkissaksóknari 112 mál gegn lögreglunni. Þrjú þeirra enduðu með dómi eða viðurlögum. Málin vörðuðu meðal annars upplýsingaleka, illa meðferð á fíkniefnahundi og lán á talstöðvum til ljósmyndara. Mynd/Stefán
Afar lítill hluti kæra almennings á hendur lögreglumönnum endar með dómsuppkvaðningu. Þetta sýna tölur yfir slík mál frá árunum 2005 til 2009. Fréttablaðið sagði frá því í vikunni að lögregluvarðstjóri hefði verið ákærður fyrir líkamsárás af gáleysi, en hann ók óvart á ungan mann sem hafði reynt að flýja undan honum á bíl með þeim afleiðingum að ungi maðurinn fótbrotnaði. Formaður Landssambands lögreglumanna og ritstjóri lögreglublaðsins hafa gagnrýnt málið og sagt að það sé erfitt fyrir lögreglumenn að sitja undir því að vera gerðir persónulega ábyrgir fyrir svona atvikum. Rétt fyrir áramót lagði alþingismaðurinn Birgitta Jónsdóttir fyrirspurn fyrir innanríkisráðherra um kærumál almennra borgara vegna starfa lögreglu á fimm ára tímabili, á hvaða rökum þær hefðu verið reistar og hver viðbrögð ráðuneytisins voru. Þá spurði hún um hvernig málunum lyktaði. Í svari ráðherra segir að 112 mál hafi borist ríkissaksóknara, sem rannsakar mál á hendur lögreglu, árin 2005 til 2009. Kærumálin eru af ýmsum toga. Í flestum tilvikum, eða 45, kærði fólk handtökur, til dæmis harðræði og meinta ólögmæta vistun í fangaklefa. Nokkrum sinnum var kært fyrir annað harðræði, ólögmæta aðferð við líkams- og húsleit og upplýsingaleka. Einu sinni var kært fyrir beitingu úðavopns, í annað sinn fyrir refsiverða háttsemi vegna rangrar skýrslugerðar og þá var varðstjóri kærður fyrir að hafa misnotað stöðu sína og látið aka sér í forgangsakstri á Keflavíkurflugvöll. Einn lögreglumaður var kærður fyrir brot á dýraverndarlögum vegna meðferðar á fíkniefnaleitarhundi og annar fyrir að láta aflífa hund manns. Þá rannsakaði ríkissaksóknari mál gegn lögreglumanni sem sakaður var um að hafa látið ljósmyndara hafa tetra-talstöð svo hann gæti fylgst með fjarskiptum lögreglu. Eitt mál til viðbótar varðaði meinta refsiverða háttsemi varðandi uppsetningu á öryggismyndavélum. Að því er segir í svarinu enduðu hins vegar aðeins þrjú þessara mála fyrir dómi eða með viðurlagaákvörðun. Langstærstum hluta mála er vísað frá dómi, þau felld niður, fallið frá saksókn eða rannsókn málanna hætt. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Starmer heldur neyðarfund vegna óeirðanna Erlent Á bólakafi í Hólmsá Innlent Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Erlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Ofurölvi vistaður í fangaklefa Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Segir af sér og flýr land Erlent Dregur úr vindi með morgninum Veður Ræddu falsfréttir og samfélagsmiðla á neyðarfundi Erlent Fleiri fréttir Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Óánægja með ætlað niðurrif á sögulegu húsi á Húsavík Fimm hundruð í Herjólfshöll í nótt og óöld í Bangladess Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Sjá meira