Atvinnuleysið mælist mest í Efra-Breiðholti 30. maí 2011 08:30
félagsmál Afgerandi munur er á hlutfalli atvinnulausra milli einstakra íbúðarhverfa í Reykjavík. Það er hæst tæp þrettán prósent í Efra-Breiðholti en sex prósent í Kringluhverfinu. Þetta kemur fram í minnisblaði Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sem lagt hefur verið fyrir borgarráð. Atvinnuleysistölur í Reykjavík sýna að í mars voru 12,8 prósent íbúa í póstnúmeri 111 í Breiðholti (Fell, Berg og Hólar), án vinnu. Í hverfinu búa 8.500 manns samkvæmt tölum Hagstofu Íslands, svo á bak við prósentutöluna eru 1.100 manns. Má því ætla að einn af hverjum fjórum vinnufærum íbúum hverfisins séu atvinnulausir. Til samanburðar er atvinnuleysi 9,5 prósent í Neðra-Breiðholti (Bakkar, Stekkir, Mjódd og Seljahverfi). Í mars voru 6.243 atvinnulausir í Reykjavík. Stella Víðisdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs, segir skiptingu á milli þjóðfélagshópa ekki hafa verið greinda sérstaklega í samhengi við atvinnuleysistölur úr einstökum hverfum borgarinnar. Hún segir jafnframt að aðrar upplýsingar um félagslegan vanda, til dæmis frá Barnavernd Reykjavíkur, tilvísanir úr skólum og fleira, séu ekki endilega hærri þar sem atvinnuleysi greinist mest. „En við höfum áhyggjur af háum tölum í einstökum hverfum. Vandinn er vissulega mismikill og borgin hefur beint sértækum úrræðum að þessum hverfum." Stella segir aðspurð að það liggi fyrir að hlutfall útlendinga sé hátt í Breiðholti, og sérstaklega í Efra-Breiðholti, sem hugsanlega sé hluti skýringarinnar. Áætlun Vinnumálastofnunar um fjölda á vinnumarkaði sýnir að 13,5 prósent útlendinga voru án atvinnu í mars en rúm sex prósent Íslendinga.- shá, gar
Mest lesið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Lögregla lýsir eftir Helga Innlent Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Innlent Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Innlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Erlent Fleiri fréttir Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Aukin skriðuhætta og breytt hlutverk kirkjunnar Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Sjá meira