Lífið

Live Project sló í gegn - Halda áfram á AK Extreme

Brot af myndunum frá Reykjavík Fashion Festival.
Brot af myndunum frá Reykjavík Fashion Festival.
Síðasta helgi var viðburðarík fyrir þá sem fylgdust með íslenska vefnum Live Project. Þar birtust yfir fimm hundruð myndir og myndbönd af Reykjavík Fashion Festival, bæði af tískusýningunum sjálfum í Hafnarhúsinu og öðrum viðburðum tengdum hátíðinni.

Meðal þess efnis sem var hvað vinsælast á vefnum var umdeild opnunarræða Jóns Gnarr borgarstjóra, kveðja rapparans Ghostface Killah, að ekki sé minnst á myndir og myndbönd frá tískusýningunum sjálfum.

Lesendur Vísis voru ekki sviknir af þessu myndaflóði, enda var borði frá hátíðinni forsíðu Vísis þar sem hægt var að fletta í nýjustu myndunum á Live Project.

Reykjavík Fashion Festival er önnur hátíðin sem Live Project tekur fyrir en vefurinn fylgdist einnig með Airwaves-hátíðinni í haust.

Nú um helgina heldur fjörið áfram því þá snýr Live Project augum sínum að tónlistar- og snjóbrettahátíðinni AK Extreme á Akureyri. Borðinn fer aftur í loftið á forsíðu Vísis (fyrir ofan Lífið) í kvöld þegar myndirnar byrja að hrúgast inn frá Akureyri.

Það verður án efa forvitnilegt að fylgjast með myndunum og myndböndunum frá hátíðinni enda ætla fremstu snjóbrettamenn landsins, meðal annars Halldór og Eiki Helgasynir, að leika listir sínar á risapöllum sem útbúnir hafa verið á Akureyri síðustu daga.

Þá má búast við því að menntskælingar láti ekki sitt eftir liggja en þeir flykkjast einnig norður til að fylgjast með Söngkeppni framhaldsskólanna.

Fyrir þá sem sitja heima er þó lítið mál að fylgjast með, bæði á liveproject.is og hér á Vísi þar sem vefurinn birtir nýjustu myndirnar. Fyrir þá sem vilja fylgjast með Söngkeppninni er síðan vert að minnast þess að hún verður í beinni útsendingu á Vísi.

RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.