Innlent

Bjarni segir að ríkisstjórnin verði að boða til kosninga

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson. MYND/GVA
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segir að fylgishrun Já-hreyfingarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave skýrist fyrst og fremst af óvinsældum ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin þurfi að boða til kosninga til að ná fram málefnalegri niðurstöðu í atkvæðagreiðslunni um Icesave.

Algjör umsnúningur hefur orðið í afstöðu þjóðarinnar til Icesave málsins ef marka má tvær nýlegar kannanir. Samkvæmt könnun sem MMR gerði fyrir fréttastofu Stöðvar tvö í gær ætla tæplega fimmtíu og sjö prósent þjóðarinnar að segja nei í atkvæðagreiðslunni á Laugardag. Í könnun sem Fréttablaðið birti í dag kemur fram að 55 prósent ætla að segja nei.

Allar fyrri kannanir bentu hins vegar til þess að Icesave málið yrði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segir að kjósendur séu fyrst og fremst að lýsa yfir óánægju með núverandi ríkisstjórn. „Nú hefur það verið þannig að það hefur verið talsverð sveifla í stuðningi við þetta mál. Ég sé enga aðra skýringu en þá að kosningin sé farin að snúast um ríkisstjórnina," segir Bjarni og telur að óvinsældir hennar geri það að verkum að kjósendur reyni að kjósa hana í burtu með því að segja nei í Icesave málinu.

Bjarni segir að eina færa leiðin fyrir ríkisstjórnina sé að boða til kosninga. Þannig væri hægt að fá kosningu um málið eins og það liggur fyrir.

Aðeins fjórðungur kjósenda Sjálfstæðisflokks ætlar að styðja Icesave málið í atkvæðagreiðslunni á laugardag samkvæmt könnun MMR. Bjarni segir að það hafi alltaf legið fyrir að málið væri umdeilt innan flokksins. „Það var minn málflutningur að réttast væri að úrslitaákvörðun í þessu máli hvíldi hjá kjósendum í þessu landi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×