Innlent

Tveir voru kærðir fyrir nauðgun

Nauðgun var kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu nú eftir helgina.

Lögregla var kvödd að húsnæði á höfuðborgarsvæðinu aðfaranótt sunnudagsins vegna nauðgunar, eftir því sem Fréttablaðið kemst næst.

Þar voru tveir karlmenn um og yfir þrítugt og nítján ára stúlka. Lögreglan handtók mennina og voru þeir látnir gista í fangageymslu í fyrrinótt.

Stúlkan fór á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis.

Mennirnir voru yfirheyrðir í gær og fer lögreglan á höfuðborgarsvæðinu með rannsókn málsins.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×