Cage í öðrum gír 29. nóvember 2011 07:00
Bíó, Seeking Justice. Leikstjórn: Roger Donaldson Leikarar: Nicolas Cage, January Jones, Guy Pearce, Harold Perrineau Framhaldsskólakennarinn Nick Gerard þiggur aðstoð leynilegra samtaka sem bjóðast til að kála manninum sem nauðgaði konunni hans. „Greiðinn" er þó ekki alveg ókeypis og fyrr en varir er Gerard kominn bæði með samtökin og lögregluna á hæla sér. Myndin byrjar ágætlega og fyrsta hálftímann byggir hún upp spennu sem gæti gefið af sér frábæran þriller. Söguþráðurinn missir hins vegar fótfestu og eftir stendur ófrumleg og fremur óspennandi mynd. Myndin er augljóslega tekin upp stafrænt og svo virðist sem kvikmyndagerðarmennirnir hafi ekki gert neinar ráðstafanir til að gera myndina meira fyrir augað. Hana skortir allt listrænt handbragð, rammarnir eru ljótir og litirnir flatir. Stafræna upptökutæknin er orðin svo háþróuð að menn eiga að geta gert miklu betur en þetta. Ég hef þó oftast gaman af Nicolas Cage og hann stendur sig ágætlega, en því verður ekki neitað að dómgreind hans hvað hlutverkaval varðar fer sífellt hrakandi. Titillinn einn og sér minnir á ódýru Tom Berenger-myndirnar sem feður okkar leigðu á tíunda áratugnum. Þær komu ekki einu sinni í kvikmyndahús, og Seeking Justice á heldur ekki neitt sérstakt erindi þangað. Haukur Viðar Alfreðsson Niðurstaða: Lofar góðu til að byrja með en nær svo engu flugi.
Lífið Mest lesið „Ég ætla ekki að þegja lengur“ Lífið Anna Lilja nældi sér í fjárfesti Lífið Íslenskar stjörnur flykkjast í sólina Lífið Borðar ekkert nema kjöt, egg og smjör Lífið Ramsay snæddi á Nebraska og lenti í árekstri á Edition Lífið Gagnrýnir varaforsetaefni Trump fyrir ummæli um barnlausar konur Lífið Græðgi meðleikonu hafi skemmt endurkomuna Lífið Chalamet syngur sem Bob Dylan í nýrri stiklu Lífið Helvítis kokkurinn: Heilög helvítis þrenna Lífið „Smávægileg martröð“ að vinna fyrir Olsen systurnar Lífið Fleiri fréttir Kinds of Kindness: Þríréttað hjá listakokknum Yorgos Slæmt jafnvægi á milli Baggalúts og Sinfóníunnar Sturluð rödd gerði áheyrendur tryllta The Lazarus Project: Varúð, veldur svefnleysi Sjá meira