Lífið

Léku sér að örlögunum

Ástfangin Leikkonan Kate Hudson er ástfangin og á von á sínu öðru barni með kærasta sínum, Matt Bellamy.
nordicphotos/getty
Ástfangin Leikkonan Kate Hudson er ástfangin og á von á sínu öðru barni með kærasta sínum, Matt Bellamy. nordicphotos/getty
Leikkonan Kate Hudson á von á sínu öðru barni með kærastanum, breska söngvaranum Matt Bellamy. Parið hefur verið saman frá því síðasta vor og er þetta fyrsta barn Bellamys.

Hudson sagðist ekki hafa verið að leita að ástinni þegar hún féll fyrir Bellamy en að hún hafi einfaldlega ekki getað haldið sig fjarri söngvaranum.

„Ég vissi ekki hvort ég var tilbúin í samband og ég var alls ekki að leita eftir því. En ég gat ekki haldið mig fjarri. Ég vildi vera með honum öllum stundum og tala við hann stanslaust.“

Hudson viðurkennir jafnframt að þungunin hafi ekki komið þeim á óvart. „Við vissum alveg hvað við vorum að gera. Við vorum að leika okkur að örlögunum og svona fór það.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.