Aron Einar semur við Cardiff á morgun Hörður Magnússon skrifar 7. júlí 2011 20:08 Aron Einar í leik með Coventry.
Aron Einar Gunnarsson skrifar undir þriggja ára samning við Cardiff City í ensku fyrstu deildinni í fótbolta á morgun. Fyrst fer hann í læknisskoðun í fyrramálið. Þetta staðfesti Aron Einar við íþróttadeild fyrir örfáum mínútum. Coventry gamla félag Arons og Cardiff eiga eftir að semja um uppeldisbætur en það ætti ekki að verða vandamál. Aron er aðeins 22 ára. Aron var í viðræðum við enska úrvalsdeildarliðið WBA en þær fjöruðu út. Aron sagði að þetta væri fínt stökk ekki of stórt og hann væri mjög sáttur. Ef allt gengur eftir fer Aron með Cardiff í æfingaferð til Spánar á næstu dögum en þegar íþróttadeild náði tali af Aroni Einar þá var hann að ferðast til Cardiff með stóra ferðatösku með sér tilbúinn í Spánarferðina. Stjóri Cardiff er Skotinn Malky Mackay en hann var áður hjá Watford. Aron sagðist hafa talað við Heiðar Helguson sem var undir stjórn Mackay hjá Watford og gæfi honum góða umsögn. Cardiff hefur verið í umspili fyrstu deildar undanfarin ár en aldrei náð að komast í úrvalsdeildina. Aron er uppalinn hjá Þór á Akureyri þaðan fór hann til AZ Alkmaar en skrifaði undir samning við Coventry árið 2008 en sá samningur rann út á dögunum. Aron hefur leikið 23 A-landsleiki.
Mest lesið Í beinni: Tindastóll - Álftanes | Allt jafnt fyrir þriðju lotu Körfubolti Skýrsla um Brynjar Karl: Geri tilraunir með börn og skorti fræðilegan grunn Körfubolti Hnefarnir látnir tala í Umhyggjuhöllinni Körfubolti Mark snemma leiks gerði gæfumuninn Fótbolti „Þetta er hreinn og klár glæpur“ Körfubolti TikTok-stjarna ÍBV dælir út efni frá Eyjum Íslenski boltinn Vilja Gylfa Þór ekki til baka: „Enginn skilaréttur“ Íslenski boltinn Gylfi valdið mestum vonbrigðum Íslenski boltinn Laugardalsvöllur tekur lit Fótbolti Uppgjörið: Haukar - Fram 25-24 | Orkufrekur eltingaleikur Handbolti Fleiri fréttir Leeds sló eigið stigamet Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu Vilja úrslitaleik snemma vegna Eurovision Brómansinn í hæstu hæðum: Lét fólkið syngja til heiðurs Klopp Willum skoraði og lagði upp í stórsigri Birmingham City City í úrslit þriðja árið í röð Englandsmeistaratitillinn tryggður með stæl Höjlund bjargaði United i blálokin á móti tíu mönnum Bournemouth Fjögur lið gætu staðið heiðursvörð fyrir Liverpool Tímabilið gæti verið búið hjá Marcus Rashford Jón Daði skoraði og Victor vann Íslendingaslaginn Newcastle felldi Ipswich og komst upp í þriðja sætið Chelsea upp í fjórða sætið Evra vill berjast við Suárez í búrinu: Hann má meira að segja bíta mig „Vilja allir spila fyrir Man United“ Kidd kominn í eigendahóp Everton Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Sjá meira