Handbolti

Sigurður Eggertsson til liðs við Fram

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigurður Eggertsson boðinn velkominn í Safamýrina.
Sigurður Eggertsson boðinn velkominn í Safamýrina. Mynd/Fram.is
Handknattleiksmaðurinn Sigurður Eggertsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fram. Sigurður kemur til liðsins frá Gróttu sem vann sér sæti í efstu deild á síðustu leiktíð.

Framarar sendu frá sér fréttatilkynningu varðandi komu Sigurðar í dag þar sem fram kemur að Sigurður sé mikill styrkur og hann boðinn velkominn.

Sigurður spilaði með Val upp yngri flokka og varð bæði Íslandsmeistari og bikarmeistari með Hlíðarendapiltum. Sigurður getur spilað hvort sem er á miðjunni eða í skyttustöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×