Sport

Frank Warren: Haye er væluskjóða

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frank Warren. Mynd. / AFP
Frank Warren. Mynd. / AFP
Frank Warren, skipuleggjandi bardagans milli Wladimir Klitschko og David Haye fer ekki fögrum orðum um þann síðarnefnda, en Klitschko vann Haye á stigum í bardaga ársins.

Eftir bardagann sagði David Haye í viðtali að hann hefði ekki getað beitt sér af fullum krafti af þeirri ástæðu að hann hefði verið tábrotinn.

Warren lét þau stóru orð falla að Haye væri væluskjóða fyrir að afsaka sinn með þessum hætti eftir bardagann.

„Hann átti þá aldrei að taka þátt í bardaganum ef hann taldi sig ekki vera kláran. Af hverju að væla svona eftir viðburðinn? það er alveg fáránlegt,“ sagði Warren við þýska fjölmiðla.

„Þegar þú ert að berjast um titilinn verður þú að leggja þig alveg 100% fram og það gerði hann ekki í gær“.

„Mér fannst þetta í raun vandræðalegt þegar hann fór að afsaka sig eftir bardagann. Ég hefði haldið að hann myndi sýna meiri auðmýkt“.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×