Formúla 1

Hamilton fljótastur á annarri æfingunni í dag

Lewis Hamilton á mótssvæðinu í Brasilíu.
Lewis Hamilton á mótssvæðinu í Brasilíu. AP MYND: Anrew Penner
Lewis Hamilton á McLaren náði besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða á Jose Carlos Pace brautinni í Brasilíu í dag. Hann varð 0.167 úr sekúndu á undan Sebastian Vettel á Red Bull, en Mark Webber á Red Bull varð 0.195 á eftir Hamilton. Webber náði besta tíma á fyrri æfingu dagsins.



Fernando Alonso á Ferrari var með fjórða besta tíma á eftir fyrrnefndum ökumönnum og Michael Schumacher náði fimmta besta tíma. Heimamaðurinn Felipe Massa var með sjötta besta tíma.

Formúlu 1 liðin æfa á ný á laugardag og tímatakan fer fram sama dag.

Vettel á möguleika á að slá met í tímatökunni á morgun, en síðustu keppni jafnaði hann árangur Nigel Mansell frá árinu 1992 hvað árangur í tímatöku varðar. Vettel hefur fjórtán sinnum náð besta tíma í tímatöku á árinu og það sama gerði Mansell 1992.

Tímarnir frá autosport.com

1. Lewis Hamilton McLaren-Mercedes 1m13.392s

2. Sebastian Vettel Red Bull-Renault 1m13.559s + 0.167

3. Mark Webber Red Bull-Renault 1m13.587s + 0.195

4. Fernando Alonso Ferrari 1m13.598s + 0.206

5. Michael Schumacher Mercedes 1m13.723s + 0.331

6. Felipe Massa Ferrari 1m13.750s + 0.358

7. Jenson Button McLaren-Mercedes 1m13.787s + 0.395

8. Nico Rosberg Mercedes 1m13.872s + 0.480

9. Adrian Sutil Force India-Mercedes 1m14.144s + 0.752

10. Paul di Resta Force India-Mercedes 1m14.807s + 1.415

11. Vitaly Petrov Renault 1m14.856s + 1.464

12. Bruno Senna Renault 1m14.931s + 1.539

13. Sergio Perez Sauber-Ferrari 1m14.970s + 1.578

14. Kamui Kobayashi Sauber-Ferrari 1m15.019s + 1.627

15. Sebastien Buemi Toro Rosso-Ferrari 1m15.264s + 1.872

16. Jaime Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1m15.388s + 1.996

17. Pastor Maldonado Williams-Cosworth 1m15.679s + 2.287

18. Rubens Barrichello Williams-Cosworth 1m15.903s + 2.511

19. Jarno Trulli Lotus-Renault 1m16.298s + 2.906

20. Heikki Kovalainen Lotus-Renault 1m16.338s + 2.946

21. Jerome D'Ambrosio Virgin-Cosworth 1m18.031s + 4.639

22. Timo Glock Virgin-Cosworth 1m18.051s + 4.659

23. Daniel Ricciardo HRT-Cosworth 1m18.367s + 4.975

24. Tonio Liuzzi HRT-Cosworth 1m18.476s + 5.084








Fleiri fréttir

Sjá meira


×