Innlent

Opnar pylsuvagn við Hvalfjarðargöngin

Erla Hlynsdóttir skrifar
Pylsubíllinn góði sést hér, ásamt fyrri eiganda sínum
Pylsubíllinn góði sést hér, ásamt fyrri eiganda sínum
„Ég er pylsuáhugamaður í grunninn þó ég hafi starfað við ýmislegt annað," segir Arnþór Gylfi Árnason sem opnar pylsuvagn, eða réttara sagt pylsubíl, við Hvalfjarðargöngin síðar í þessum mánuði.

Gylfi er búsettur í Borgarnesi og rekur ferðaþjónustufyrirtækið Tourist Online ehf. sem hefur fengið leyfi til að selja pylsur við göngin.

„Mér finnst þessi staðsetning mjög góð. Ég starfa í ferðamannabransanum og þessi staður er gáttin inn á Vesturland," segir Gylfi.

Aðstaðan inni í pylsubílnum
Pylsubíllinn verður staðsettur á plani við þjóðveg 1, rúma hundrað metra frá hringtorginu við nyrðri muna Hvalfjarðarganganna.

Samkvæmt aðalskipulagi hefur Olíuverzlun Íslands hf. allan rétt til þjónustustarfsemi á svæðinu næstu áratugina, en Gylfi hefur samið við fyrirtækið um reksturinn. Þá hefur hann þegar fengið leyfi frá öllum öðrum sem þessu við koma, svo sem Hvalfjarðarsveit, Vegagerðinni og heilbrigðiseftirlitinu.

Á þessu plani verður pylsubíllinn
„Þetta er bara allt að verða klárt," segir Gylfi. Í pylsubílnum verða einnig hægt að kaupa kaffi og aðrar veitingar. „Fyrst og fremst verða þetta samt pylsur. Því Íslendingar borða pylsur. Alltaf!" segir Gylfi.

Hann stefnir sjálfur á að afgreiða reglulega í pylsubílnum þó hann komi einnig til með að ráða til sín starfsfólk. Síðan segir hann aldrei að vita nema reksturinn komi til með að stækka ef viðskiptin blómstra við þjóðveginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×