Viðskipti erlent

Ný kynslóð af gulum leigubílum í New York

Ný kynslóð hinna þekktu gulu leigubíla í New York borg kemur á götur borgarinnar árið 2013. Þeir verða framleiddir hjá Nissan bílaverksmiðjunum í Japan.

Michael Bloomberg borgarstjóri New York greindi frá þessu í gærdag. Hinir nýju leigubílar munu byggja á hönnun NV200 sendiferðabílsins frá Nissan. Um er að ræða samning til 10 ára og er hann talin um eins milljarðs dollara, eða 111 milljarða króna virði.

Nissan keppti við Ford og tyrkneska bílaframleiðendann Karsan Otomotiv um þennan samning. Nissan hlaut samninginn þar sem framleiðandinn bauð fram bíl sem var sparneytnastur á eldsneyti af þeim þremur sem í boði voru. Raunar notar Nissan bíllinn helmingi minna bensín en sá sem Ford bauð fram.

Hinir nýju leigubílar frá Nissan verða útbúnir með gervihnattaleiðsögn þannig að engin hætta er á að leigubílstjórarnir villist þegar þeir þurfa að aka farþegum sínum í úthverfi borgarinnar.

Um 13.000 gulir leigubílar aka um götur New York með um 600.000 farþega á ári hverju.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×