Handbolti

Atli: Versti leikur okkar undir minni stjórn

Stefán Árni Pálsson í Digranesinu skrifar
„Þetta er í raun slakasta frammistaða sem ég hef séð frá liðinu undir minni stjórn,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, eftir að lið hans hafði steinlegið gegn HK, 31-23, í öðrum leik liðanna í undanúrslitum N1-deildar karla í handbolta.



„Sama hvar maður lýtur á leik okkar þá vorum við lélegir og þeir voru betri en við á öllum sviðum“.



„Ég er virkilega óánægður með það hvernig strákarnir nálguðust leikinn og það viðhorf sem þeir komu með“.



„En það skiptir engu máli með hversu mörgum mörkum við töpuðum hér í kvöld, staðan er bara 1-1 og við verðum bara að klára dæmið á Akureyri á mánudaginn,“ sagði Atli Hilmarsson.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×