Forstjóri Landsvirkjunar: Arðsemi Kárhnjúka er of lág 15. nóvember 2011 14:50
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að meðalarðsemi af Kárahnjúkavirkjun sé of lág. Arðsemin er að meðaltali 3,5 prósent að sögn Harðar en þetta kom fram á fundi Landsvirkjunar sem nú stendur yfir í Hörpu þar sem fjallað er um möguleika fyrirtækisins á sviði endurnýjanlegrar orku. Tekjur virkjunarinnar eru 6 prósent af bókfærðu virði hennar og segir Hörður það einnig vera of lága tölu. Miðað við eðlilega staðla ættu tekjurnar að nema 9 prósentum af bókfærðu virði. Hörður segir að þrátt fyrir að arðsemin sé of lág þá hafi rekstur Kárahnjúka gengið vel. Framleiðslan var til að mynda 7,7 prósentum meiri í fyrra en gert hafði verið ráð fyrir. Stofnkostnaður Kárahnjúka með öllu nam 2,3 milljörðum dollara. Þá kom fram í máli Harðar að orkuverð til stórra orkukaupenda hafi verið of lágt og hefur hefur bitnað á arðsemi Landsvirkjunar. Fyrirtækið skilaði síðast 73 milljónum dollara í hagnað, en hagnaðurinn ætti að vera 180 milljónir dollara, miðað við 1,6 milljarða dollara eigið fé. Þrátt fyrir þetta er Landsvirkjun að mati Harðar fjárhagslega sterkt fyrirtæki en þjóðin hefur ekki notið nægilegs arðs af fyrirtækinu og rekstrinum. Fylgst er með fundinum á forsíðu Vísis í gegnum Twitter.
Mest lesið Dæmi um fimmtíu prósenta hækkun á matvöru Neytendur Rukkaður um 2800 króna aukagjald í Reynisfjöru Neytendur Gapandi hissa að sjá túrista skipta á milli sín mat: „Ég sárlega vorkenndi þeim“ Neytendur Tælenskt hveiti úr umferð Neytendur Ofuráhersla á umhverfismálin þegar sjálfbærnin snýst í raun um fólk Atvinnulíf Hugmyndir fyrir tómlega vinnustaði og leiðinlega vinnudaga Atvinnulíf „Við erum ekki að fara að vinna“ Neytendur Ódýrara að velja erlenda gjaldmiðilinn í posum erlendis Neytendur Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Viðskipti erlent Horfurnar versna hjá Play sem kippir afkomuspá úr gildi Neytendur Fleiri fréttir Hagnaður Arion banka dregst saman milli ára Play tapaði milljarði en staðan „mjög traust“ að mati forstjórans Bein útsending: Play kynnir uppgjör Barátta Seðlabankans löngu töpuð Formaðurinn neiti að horfast í augu við einkunnaverðbólgu Gústi Jó ráðinn markaðsstjóri Vöruverndar Verðbólgutölur minnki líkur á vaxtalækkun „allverulega“ Þekkja engin dæmi um að lögheimilisskráning stöðvi fasteignasölu Eyþór fyllir í skarð Rósu hjá Heimum Verðbólga eykst milli mánaða Stýrivextir mögulega ekki lækkaðir fyrr en í febrúar „Ljóst að staðan er mjög strembin“ Móðurfélag Össurar hagnaðist um 2,8 milljarða á metfjórðungi Fækkun ferðamanna gæti komið íbúðum á markað Fækkun ferðamanna mögulega leitt til hraðari lækkunar stýrivaxta Fá hundrað milljónir til að þróa gervigreind Styrkás kaupir Kraft Landsliðskokkur kaupir hverfisstaðinn: „Þetta gerðist í rauninni bara mjög hratt“ KFC á Íslandi segir meinta ljósmynd viðskiptavinar „falska“ Komust ekki inn á netbanka vegna bilunar Titringur á bókunarmarkaði: „Í kjörstöðu til að taka yfir þennan markað“ Landsbankinn hagnaðist um 16 milljarða eftir skatt Víkingur skiptir um hlutverk hjá Öskju Einar Hrafn ráðinn markaðsstjóri 1,4 milljarða sparnaður af uppsögnum 140 starfsmanna í maí og júní „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Sjá meira