Innlent

Í varðhald fyrir að hóta vitnum í hrottafengnu pyntingarmáli

Valur Grettisson skrifar

Karlmaður á Akureyri var úrskurðaður í gæsluvarðhald um áramótin eftir að hann hótaði vitni í þeim tilgangi að hafa áhrif á vitnisburð hans vegna hrottalegs ofbeldismáls sem verður réttað í þann 7. janúar næstkomandi. Þá hafði lögreglan einnig afskipti af manninum eftir að hann gekk í skrokk á sambýliskonu sinni og vinkonu hennar sama kvöld.

Í greinagerð Héraðsdóms Norðurlands eystri segir að aðfaranótt 1. janúar hafi lögreglu borist tilkynningar frá sambýlisfólki á tvítugs og þrítugsaldri um að maðurinn hefði viðhaft mjög alvarlegar hótanir gegn þeim.

Segir að tilefni þessarar hótana hafi tengst væntanlegum vitnisburði mannsins í dómsmáli sem ákæruvaldið hafi höfðað gegn manninum og fleiri aðilum vegna ætlaðrar líkamsárásar, frelsissviptingar og fjárkúgunar.

Fram kemur að lögreglan hafi talið tilefni til að rannsaka hvort að maðurinn hafi að undanförnu ítrekað haft samband við vitnið í því skyni að fá hann til að haga vitnaframburði sínum í dómsmáli þannig að það þjónaði hagsmunum hans.

Er á það bent, að lögreglan rannsaki þannig staðhæfingar sambýlisfólksins, um að maðurinn hafi tengst líkamsárás gegn konu vitnisins á síðasta ári, og þá í því skyni að hafa áhrif á vitnisburð í umræddu dómsmáli.

Málið sem um ræðir varðar frelsissviptingu ungs manns. Tveir karlmenn og kona tóku hann í gíslingu á Akureyri í ágúst 2009. Maðurinn þurfti að þola pyntingar og að vera laminn með járnröri. Þá eru þremenningarnir sakaðir um að hafa kastað logandi klósettpappír í manninn og hafa með því stofnað öðrum íbúum í fjölbýlishúsi, sem þau voru stödd í, í stórhættu.

Einn maður er grunaðir um að hafa haft sig mest frammi en ekki er ljóst hvort það sé umræddur maður.

Aðalmeðferð málsins fer fram í lok vikunnar. Maðurinn var úrskurðaður í Hæstarétti í dag í gæsluvarðhald til 7. janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×