Katrín tekur vel í landakaup 21. janúar 2011 18:30
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, segir vel koma til greina að ríkið taki tilboði Reykjanesbæjar um kaup á landi og jarðauðlindum sem áður voru í eigu HS orku. Með þessu gæti ríkið samið beint við Magma Energy um styttri nýtingartíma á orkuauðlindunum. Bæjarsstjórn Reykjanesbæjar lagði tilboðið fram í byrjun vikunnar en í því felst að ríkið kaupi land og auðlindir sem HS Orka nýtir til orkuframleiðslu. Formlegt bréf var þess efnis sent forsætisráðherra í gær. HS orka er nú að mestu í eigu Magma Energy sem þar með hefur nýtingarrétt á orkuauðlindum á Reykjanesi til næstu 65 ára og getur framlengt um 65 ár til viðbótar. Ekki hefur verið fjallað um hugsanlegt söluverð en það gæti verið á bilinu einn til tveir milljarðar. Iðnaðarráðherra segir að vel komi til greina að taka þessu tilboði. „Mér finnst að við eigum að skoða það alvarlega. Samkvæmt lögum þá mega opinberir aðilar, hvorki sveitarfélag né ríki selja frá sér auðlindir til einkaaðila þannig að eini markaðurinn með auðlindir er á milli opinberra aðila þannig að það er ekkert óeðlilegt ef þeir vilja selja, að þeir leiti fyrst til ríkisins," segir Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra. Gangi þetta eftir mun ríkið geta samið beint við Magma Energy um styttri leigutíma. „Við erum samt með í farvegi að fara í þríhliða viðræður um styttingu á leigutímanum þannig að ég sé svo sem ekki að það eigi að breyta miklu. Ég veit að það er samstarfsvilji hjá Reykjanesbæ og hjá Magma í því máli," segir Katrín.
Mest lesið Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Innlent Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Innlent Gena Rowlands er látin Erlent Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Innlent Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Innlent Sagðir hafa lagt á ráðin um skemmdarverkin á Nord Stream í ölæði Erlent Fjögurra daga gamlir tvíburarnir fórust á meðan faðirinn brá sér frá Erlent Rannsaka innbrot og mögulega vatnsmengun á herstöð í Þýskalandi Erlent Fleiri fréttir Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Bótagreiðslur til Íslendinga almennt hærri Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Sjá meira