Bæjarfulltrúar verða að geta tjáð sig 23. mars 2011 06:00 Guðríður Arnardóttir Á bæjarstjórnarfundi í Kópavogi.fréttablaðið/Stefán
Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs í Kópavogi, gerir enga athugasemd við að fólk leiti álits innanríkisráðuneytisins á því að Kópavogsbær greiði kostnað hennar og tveggja annara bæjarfulltrúa vegna meiðyrðamáls sem Frjáls miðlun höfðaði gegn þeim. Hún segir hins vegar misskilning hjá Jóhanni H. Hafstein héraðsdómslögmanni, sem kveðst fara fyrir hópi íbúa sem setur sig upp á móti greiðslunni, að bæjarstjórn eigi eftir að fjalla um málið. „Málið var afgreitt í bæjarráði og það var fullnaðarafgreiðsla.“ Guðríður segist hins vegar telja að fari fólk yfirvegað yfir staðreyndir málsins hljóti flestir að átta sig á mikilvægi þess að kjörnir fulltrúar geti tjáð sig óhindrað um mál sem að sveitarfélagi þeirra snúa. Jafnframt bendir hún á að leitað hafi verið álits bæði lögmanns Sambands íslenskra sveitarfélaga og Lagastofnunar Háskólans, á málinu. Eins bendir Guðríður á að fordæmi séu fyrir því að sveitarfélög greiði viðlíka kostnað. Þannig hafi Umboðsmaður Alþingis beint því til A-Eyjafjallahrepps árið 2001 að greiða kostnað skólanefndarfólks í meiðyrðamáli á hendur þeim. Héraðsdómur Reykjaness sýknaði bæjarfulltrúana í nóvember af kröfum Frjálsrar miðlunar, en dómnum hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar. Tapi bæjarfulltrúarnir málinu þar segir Guðríður þá sjálfa bera kostnað af málarekstrinum, enda sé þá ljóst að þau hafi farið út fyrir þann ramma sem þeim sé settur í störfum sínum.- óká
Mest lesið Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Innlent Rússar lýsa yfir neyðarástandi Erlent Myndi fara stystu leið upp í sveit Innlent Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Innlent Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Innlent Sleginn í rot í hópslagsmálum í miðbænum Innlent Gerðu loftárás á skóla í nótt Erlent Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Erlent Aflýsir fundi eftir viðvörun um mögulegan ofurskjálfta Erlent Umdeilt kosningamyndband Höllu „bara í gríni gert“ Innlent Fleiri fréttir Sleginn í rot í hópslagsmálum í miðbænum Myndi fara stystu leið upp í sveit Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Rússar lýsa yfir neyðarástandi og nýtt rafskútufyrirtæki Brutu rúður í strætóskýlum í Mjódd Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Einn slasaður eftir aftanákeyrslu í Mosfellsbæ Tveir yfirheyrðir og enn óvissa um refsiverða háttsemi Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Mikið álag sem bitnar mest á bráðamóttökunni Fjögur sóttu um embætti yfirdýralæknis Ný aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi staðfest Umferðartafir vegna áreksturs Sparkaði í meðvitundarlausan mann og skar annan í andlitið Titringurinn á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að magnast Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Patrik biðst afsökunar Lögregla heldur þétt að sér spilunum og Bolt mætir til leiks í Reykjavík Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Blöskrar græðgi á kostnað gæða Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Veislan tekin af dagskrá FM957 „Gettó“ í Ármúla og hryðjuverkaógnin í Vínarborg Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík Sjá meira